Sumarið er komið á Skáni fyrir nokkru síðan. Það byrjar frekar rólega, Hyasintur og krókusar skjóta upp kollinum, síðan færist fjör í leikinn þegar Kirsuberja tréin og Magnólíutréin blómstra. Sumarið er komið þegar Sírenurnar blómstra, þá liggur sæt angan í loftinu og krónublöð kirsuberjatrjánna liggja í göturæsunum. Sumarið er komið þegar göturæsin í Eslöv verða bleik.





